HÁLS- OG BAKÆFINGAR HEIMA Í STOFU EÐA Í SUNDLAUG
3 MÁNAÐA FJARÞJÁLFUN MEÐ AÐGANG AÐ ÞJÁLFUNARGÁTT SEM HÆGT ER AÐ SKOÐA Í SNJALLSÍMA EÐA TÖLVU.


Dr. Harpa Helgadóttir, PhD, sjúkraþjálfari og sérfræðingur í stoðkerfisfræðum
Dr. Harpa Helgadóttir hefur kennt bakleikfimi í þrjátíu ár eða frá því hún útskrifaðist sem sjúkraþjálfari árið 1991.
Harpa lauk sérfræðinámi í stoðkerfisfræðum og meistaragráðu frá háskóla í Bandaríkjunum árið 2005, þar sem hún starfaði um tíma. Doktorsgráðu lauk hún árið 2010 frá Háskóla Íslands þar sem hún rannsakaði starfsemi háls og efra baks hjá fólki með hálsverki. Harpa kenndi í fimmtán ár í Háskóla Íslands og er í dag með námskeið fyrir sjúkraþjálfara, bæði hér á landi og erlendis.